Leitin að Strákunum

10.06.2007 10:53:48 / Auddi

Takk allir

Langar að óska Eika, Söru og Halli til hamingju með árangurinn. Þetta er búið að vera alveg frábært og hlakka ég mikið til að sjá hvernig þátturinn hjá þeim verður. Ég er sannfærður um það að þau eigi eftir að standa sig frábærlega og hver veit nema Jóhann láti sjá sig í einni falinni myndavél eða svo hjá þeim. Mig langar að nota tækifærið og þakka öllum sem komu að gerð þessara þáttar, Dignus pródúsent, Hugi mega framkvæmdastjóri, Jósi klippari frábær, auðvitað Sveppi, Pétur og hrúga af gestadómurum, allir hjá Filmus, Varði og Hreinn hjá Kukl, sjálfsögðu allir keppendur og líka þeir sem komust ekki í 10 manna úrslit, plús allir þeir sem ég er að gleyma. Látiði mig vita þegar þessi óskarsverðlaunaræða verður væmin :) Þessir mánuðir voru einstaklega lærdómsríkir og frábærlega skemmtilegir. Ég vona að þið þarna úti höfðuð gaman af þessari enn einni vitleysu sem okkur dettur í hug :D TAKK

Kveðja,

Auddi 


» 54 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 11:53:34 / Sveppi

Úrslitastund framundan

Hæ allir,

þá er komið að úrslitaþætti á föstudaginn. Þá kemur í ljós hvaða þrír vinna sinn eigin þátt á Sirkurs í haust. Ég er allavega orðinn mjög spenntur og veit að valið verður rosalega erfitt þar sem þau fjögur sem eftir eru eru búinn að standa sig frábærlega í þættinum. Annars er allt gott að frétta, fór á landsleikinn á móti Líktenstæn þurfum ekkert að ræða það frekar, verulega slappur leikur bara einn af þessu leikjum sem ekkert gengur upp. Í kvöld er það bara Svíþjóð vinna þann leik og bjarga drullunni frá síðasta leik. Áfram Ísland jafnvel þó við getum ekki neitt ;)

Jæja allir að horfa á föstudaginn kl.20.30 rosa spennó úrslitaþáttur

Kv,

Sveppi Krull


» 23 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 11:27:11 / Pétur

Eru ekki allir í góðu gríni ?

 

Sorry hvað ég hef komist lítið í þáttinn, það er búið að vera rosalega mikið að gera hjá kallinum. Maður er að leika í bíómynd þessa dagana og það tekur bjánalega langan tíma. Annars er allt gott að frétta er búinn að finna uppá Dj nafninu mínu, Dj. Peter J Sigfusion 8) finnst ykkur það ekki töff. Kallinn að þeyta skífum kósveittur á skemmtistöðum bæarins.

Rölti í Öskjuhlíðina um daginn og öskraði á nokkra ketti, þeir vissu ekki neitt, horfðu bara á mig og hlupu svo í burtu.

Horfið á föstudaginn og svo er úrslitaþátturinn 8.júni ég er í honum

Kv,

Peter J 


» 25 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 09:41:07 / leitin

blogg, blogg, blogg...

Jóhann Sævar: Eins og ádur kom fram ad thá er ég hér í Gran Alacant á spáni sem er nokkud gaman, en mig er farid ad lengja heim audvitad enda er alltaf gott á Íslandi[Meira]

Eiríkur Rósberg: Já gott fólk, í kvöld er 6.þátturinn á dagskrá og eru það Inga Lind, Bubbi og Gísli Marteinn sem eru gestir og gestadómarar að þessu sinni.[Meira]

Ragnar Erling:   Ég tilkynni hér með allsherjar þjóðarsorg!!! Ljósið hefur verið slökkt. [Meira]

Hallur Örn: Ohh já, djöfull elska ég að fara til tannlæknisins. Það var gaman sem krakki, en núna þegar ég þarf að borga sjálfur fyrir það, ennþá meira gaman. [Meira]

Sara Hrund:Ágætis þáttur á föstudaginn sossum. er enn á því að Eiki og Gísli hafi svindlað og ekki sagt satt um skautahæfileika sína. glætan að þeir hafi getað skautað svona eftir skautahlé í 15 ár. . [Meira]

Jón Haukdal: Já, ég þakka þeim sem hafa skrifað í dagbókina mín og hef reynt að vera duglegur að svara á móti! Ég fékk skemmtilega áskorun að éta stropað fýlsegg!!! Já, ég get sagt ykkur litla sögu um svoleiðis. [Meira]Þórdís : Hahahahahaha.....Sáuði svipinn á mér í þættinum á föstudaginn!?! Allavega þá er svipurinn fyrst eins og ég ætli að berja einhvern og breytist síðan á sekúndubroti í mest svekta manneskju í heimi [Meira]

27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" codebase= "http://fpdownload.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=8,0,0,0" width="600" height="120">


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 10:13:40 / Auddi

Auddi Bloggari...

Ég hef aldrei verið bloggari og kann því lítið að blogga. En annars er ég bara nokkuð þéttur. Það er virkilega skemmtilegur þáttur annað kvöld þar sem að Bubbi Morthens, Gísli Marteinn og Inga Lind fara á kostum með keppendum. Og hvað mig varðar að þá hefur þessi vika verið ágæt. Horfði á Milan vinna Liverpool í meistaradeildini í gær og sá svo Jordan Sparks verða að Idoli í bandaríkjunum. 17 ára grátandi á sviðinu fyrir framan 40 milljónir manns. Þegar að ég var 17 ára var ég á sauðárkróki með strýpur rúntandi um á splunku nýjum rauðum Huyndai Coupe ;) Fannst ég alveg maðurinn ! Jordan er kannski komin með milljón dollara plötusamning en hún þekkir ekki spennuna að rúnta framhjá félagsmiðstöðinni sinni í von um að einhverjar stelpur úr 10bekk langi á rúntinn :) Jæja bið að heilsa liðinu...Kv Auddi.

 


» 43 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 16:08:33 / leitin

Inga Lind í eróbikki


Atriði úr þætti sex þar sem Inga Lind fer í eróbikktíma hjá Ragga og Jóhanni

» 11 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 16:05:36 / leitin

Gísli Marteinn á skautum


Atriði úr þætti sex þar sem Gísli Marteinn fer í skautakeppni við Eika og Söru

» 8 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 16:03:19 / leitin

Bubbi boxar


Atriði úr þætti sex þar sem Bubbi Morthens prófar að slá í vambirnar á Halli og Jóni Haukdal

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 10:31:29 / leitin

Enn er verið að blogga....

Friðjón Valtýr:  Já ég veit að ég var ömurlegur í leitinni og fólk finnst ég vera bara skritið fyrirbæri. [Meira]
Eiríkur Rósberg: Það var aðeins rætt hér á blogginu hvað Bókstaflegi gaurinn var góður og ég þakka fyrir það. [Meira]
Ragnar Erling:Ohh hvað það er gott fyrir fábrotið sálarlíf mitt að sjá að þið hafið gaman af því að horfa á migÞúsund blautir kossar til ykkar allra. [Meira]
Hallur Örn: Vá, eftir að hafa verið að taka upp allt þetta dót með strákunum er ömurlegt að koma heim og byrja að vinna. [Meira]

Jóhann Sævar: Jaejja, gódir lesendur, og áhorfendur. [Meira]

Ragnar Erling: Jæja þá er atriðið mitt með henni Frú Bryndísi Schram komið til skila.[Meira]

Sara Hrund:já þegar mann byrjar að fá martraðir um þátttöku sína í Leitinni þá er maður kannski orðin aðeins of svona.. þið vitið.[Meira]

Jón Haukdal: Fribbi er alveg yndislegur strákur!!! Ég hef verið að lesa bloggið hans, bæði hérna og inná minnsirkus.is. [Meira]

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 14:36:13 / Sveppi

Líf og fjör

Sælt veri fólkið.

 

Gaman að sjá hvað margir hafa kíkt á svona stuttum tíma.
Þátturinn á föstudag var bráðskemmtilegur og sýndu keppendur að það býr mikið í þeim sem sjónvarpsfólk. Nú styttist í annan endan á þessu ævintýri og ekki nema 6 keppendur eftir sem þýðir að það eiga aðeins 3 eftir að detta út áður en við fáum að sjá hvaða 3 fá sinn eigin þátt, skarplega athugað hjá mér :)

Ég ætla biðja ykkur fólk að tala ekki illa um aðra hér á þessari síðu. Þetta á að vera skemmtileg viðbót við þáttinn okkar og því er það ekki viðeigandi að vera með leiðindi á skemmti síðu ;)

Verum jákvæð og hress

Bið að heilsa öllum

Kveðja,

S. Krull 


» 19 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 13:19:13 / Auddi

Allir að horfa í kvöld !

Þátturinn hefur að mínu mati tekið smá tíma að fara í gang skiljanlega. Það eru margir keppendur og hafa atriðin verið misgóð eins og gengur og gerist. En í kvöld er fanta þáttur og má segja að þetta sé farið að rúlla af alvöru og keppnin farin að harðna ! Þannig að ekki missa af þættinum í kvöld...Kv Auddi.

» 26 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 10:22:47 / Rúna Sif

Ný blogg hjá keppendum....

Friðjón Valtýr:Kann einhver hér að setja inn youtube myndbönd? En ég fæ það aldrei til að virka hjá mér? Það er orðið langt síðan ég bloggaði síðast á blog.central.is.  [Meira]

Eiríkur Rósberg:Ég er einn af þessum stórskemmtilegu keppendum Leitarinnar að Strákonum og er nú búinn að bralla ýmislegt og hafa gaman að. [Meira]

Ragnar Erling:Ohh hvað það er gott fyrir fábrotið sálarlíf mitt að sjá að þið hafið gaman af því að horfa á migÞúsund blautir kossar til ykkar allra. [Meira]

Hallur Örn: Ég nota iChat, sem tengist inná AOL Messenger. [Meira]

Sara Hrund Hallur er kominn með metið í bloggfærslum. aðeins komnar fjórar á einum sólarhring.  ég ætla að reyna að ná í rassgatið á bangsanum og koma með færslu númer tvö. [Meira]

Jón Haukdal: Þetta er fysta bloggið mitt hérna inni, svo sem það fyrsta sem ég geri fyrir eitthverja alvöru. [Meira]

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 14:51:14 / leitin

Bókstaflegi gaurinn


Brot úr gríni um bókstaflega gaurinn Eiki gerði fyrir 5. þátt.

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 14:48:36 / leitin

Sara Púki


Sara Púki hrekkti endurnar á tjörninni fyrir 5. þátt. Hægt er að sjá allan hrekkinn í 5. þætti.

» 15 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 14:43:12 / leitin

Raggi Sketch


Brot úr sketch sem Raggi gerði fyrir 5. þátt. Bryndís Schram er gestaleikkona.

» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Skemmtilegar síður
Leitin að Strákunum